22. ágú. 2014

Uppskeruhátíð sumarlesturs

Mjög góð þátttaka var í Sumarlestri Bókasafns Garðabæjar líkt og undanfarin ár en alls voru þátttakendur 189. Sumarlesturinn er ætlaður börnum á grunnskólaaldri og hvetur til lesturs í sumarfríi skólanna svo börnin nái að viðhalda lestrarkunnáttu sinni. Fjölmenn lokahátíð Sumarlestursins fór fram fimmtudaginn 21.ágúst í Bókasafni Garðabæjar á Garðatorgi
  • Séð yfir Garðabæ

Mjög góð þátttaka var í Sumarlestri Bókasafns Garðabæjar líkt og undanfarin ár en alls voru þátttakendur 189.   Sumarlesturinn er ætlaður börnum á grunnskólaaldri og hvetur til lesturs í sumarfríi skólanna svo börnin nái að viðhalda lestrarkunnáttu sinni.  Að loknum sumarlestri voru það 66 börn sem skiluðu inn lestrardagbókinni sinni og samtals lásu þau 94.735 blaðsíður sem er mjög flottur árangur og greinilegt að börnin í Garðabæ eru ekkert að slá slöku við í lestrinum. 

Fjölmenn lokahátíð Sumarlestursins fór fram fimmtudaginn 21.ágúst í Bókasafni Garðabæjar á Garðatorgi þar sem voru veittar viðurkenningar, verðlaun og dregið úr lukkupotti. Ævar vísindamaður mætti á svæðið og lék listir sínar og boðið var til grillveislu.  Bókasafnið þakkar öllum sem tóku þátt kærlega fyrir lestrardugnaðinn og þau börn sem komust ekki á lokahátíðina geta nálgast viðurkenningaskjöl, lestrardagbækur og verðlaun í afgreiðslu safnsins á Garðatorgi.

Lestrarhestar ársins voru:
Hugrún Greta Arnarsdóttir, 2001  -  10.720 bls
Hrafnhildur Ming Þórunnardóttir, 2002  -  8.275 bls

Vinningshafar  -  flestar blaðsíður lesnar eftir aldurshópum:
 2008,   6 ára:  Snædís Birna Guðjónsdóttir, 354 bls
 2007,   7 ára:  Katrín Silja Aðalsteinsdóttir,  2227 bls
 2006,   8 ára:  Þorbjörg Helga Sveinbjörnsdóttir, 2061 bls
 2005,   9 ára:  Anney Fjóla Þorgeirsdóttir, 5416 bls
 2004, 10 ára:  Elisabeth Eiríka Ellingsen Óttars, 2835 bls
 2003, 11 ára:  Klara Ósk Sigurðardóttir, 4303 bls
 2002, 12 ára:  Rakel María Ellingsen Óttarsd, 5357 bls

Hvatningarverðlaun fyrir mjög góðan árangur:
Salka Ýr Ómarsdóttir, Þórey Marta Kolbeins, Birta Dís Gunnarsdóttir, Eyvör Ómarsdóttir, Eva Margrét Magnúsdóttir, Hjördís Emma Arnarsdóttir, Austin Ching Yu NG, Sigfús Ísarr Þórðarson,  Margrét Eir Gunnlaugsdóttir, Ragnhildur Guðrún Guðmundsdóttir, Tara Sól Guðmundsdóttir, Bergdís Lilja Þorsteinsdóttir, Dóra Sjöfn Halldórsdóttir, Júlíana Karitas Jóhannsdóttir. 

Vefur Bókasafns Garðabæjar
Bókasafn Garðabæjar á facebook