Fjör í Álftaneslaug
Álftaneslaug tók þátt í Sundlauganótt sem var haldin laugardagskvöldið 6. febrúar sl. Sundlauganótt er hluti af Vetrarhátíð og fjölmargar sundlaugar af öllu höfuðborgarsvæðinu tóku þátt í ár. Þetta var í þriðja sinn sem Álftaneslaug tók þátt í Sundlauganótt og boðið var upp á dagskrá í lauginni í samstarfi við menningar- og safnanefnd Garðabæjar. Ókeypis aðgangur var í sundlaugina frá kl. 16 til miðnættis.
Yngstu gestirnir gátu farið í dótasund í innilauginni, diskóið var á sínum stað í öldulauginni sem ásamt heitu pottunum var skemmtilega upplýst í tilefni kvöldins. Í ár var aftur boðið upp á zumbakennslu í lauginni og tókst vel til. Ungir og efnilegir nemendur í rytmískri hljómsveit úr Tónlistarskóla Garðabæjar spiluðu fyrir sundlaugargesti sem sátu og nutu tónlistarinnar í heitu pottunum.
Fleiri myndir frá Sundlauganótt má sjá á fésbókarsíðu Garðabæjar.