11. des. 2015

Vel mætt á jóla- og góðgerðardaginn

Hinn árlegi jóla- og góðgerðardagur var haldinn í íþróttamiðstöðinni á Álftanesi nýlega. Að venju var fjölbreytt dagskrá og margir sem tóku þátt.
  • Séð yfir Garðabæ

Laugardaginn 28. nóvember sl. var hinn árlegi jóla- og góðgerðardagur haldinn í íþróttamiðstöðinni á Álftanesi. Það er foreldrafélag Álftanesskóla ásamt ýmsum félagasamtökum á Álftanesi sem hafa staðið fyrir þessum degi í nokkur ár.  Að venju var fjölbreytt dagskrá í boði þennan dag í íþróttamiðstöðinni og margir sem lögðu leið sína þangað.   

Fjölmörg félög og einstaklingar voru með söluborð þar sem hægt var að kaupa ýmsan varning, eins og handverk, hönnun, kaffi o.fl. Allur ágóði af leigu borðanna fór til góðs málefnis. 

Ljósin tendruð á jólatrénu á Álftanesi

Að lokinni dagskrá innandyra er hefð að fara út og tendra ljósin á jólatrénu sem er staðsett fyrir utan íþróttamiðstöðina. Sigríður Hulda Jónsdóttir forseti bæjarstjórnar hélt stutta tölu og sr. Hans Guðberg Alfreðsson flutti hugvekju. Því næst stigu á svið Hrafnkell Pálmarsson og Pálmar Ólason og fluttu vel valin jólalög á meðan dansað var í kringum jólatréð.  Að lokum komu nokkrir jólasveinar fyrr til byggða og heilsuðu upp á börn og fullorðna. 

Á fésbókarsíðu Garðabæjar er hægt að sjá fleiri myndir frá jóla- og góðgerðardeginum.