Stjarnan Norðurlandameistari í hópfimleikum kvenna
Laugardaginn 14. nóvember síðastliðinn varð meistaraflokkur kvenna í Stjörnunni Norðurlandameistari í hópfimleikum í fyrsta sinn.
Laugardaginn 14. nóvember varð meistaraflokkur kvenna í Stjörnunni Norðurlandameistari í hópfimleikum í fyrsta sinn. Mótið var haldið í Vodafone höllinni að Hlíðarenda fyrir fullu húsi og var mikil stemmning hjá Stjörnufólki á staðnum sem hvatti sitt lið af miklum krafti. Stjarnan tryggði sér sigurinn með frábærum æfingum og sigraði með 57,933 stigum. Í öðru og þriðja sæti voru lið frá Svíþjóð og lið Gerplu lenti í 4. sæti.
Stjarnan átti einnig lið í flokki blandaðra liða sem stóð sig mjög vel og lenti í 7. sæti.
Hægt er að lesa meira um þennan glæsilega sigur á heimasíðu Stjörnunnar, www.stjarnan.is. Myndir með fréttinni eru frá yfirþjálfara Norðurlandameistaranna, Niclaes Jerkeholt.