Þingmenn kjördæmisins heimsóttu Garðabæ
Þingmenn Suðvesturkjördæmis heimsóttu Garðabæ nú nýlega og áttu samtal við bæjarstjórn um málefni bæjarins og hagsmunamál sveitarfélaga.
Þingmenn Suðvesturkjördæmis heimsóttu Garðabæ nú nýlega og áttu samtal við bæjarstjórn um málefni bæjarins og hagsmunamál sveitarfélaga. Á fundinum var m.a. rætt um breikkun tekjustofna sveitarfélaga en bæjarstjórn samþykkti nýlega áskorun á ríkisstjórnina um að gera breytingar á þeim.
Einnig var rætt um tillögu að staðsetningu Landspítala á Vífilsstöðum, málefni fatlaðs fólks, húsnæðismál, gatnamót Vífilsstaðarvegar og Hafnarfjarðarvegar og rekstur hjúkrunarheimilisins Ísafoldar.