30. sep. 2015

40 ára afmæli Garðabæjar árið 2016

Afmælisnefnd vegan 40 ára afmælis Garðabæjar 2016 leitar eftir hugmyndum bæjarbúa, félaga og fyrirtækja í bænum, um hugmyndir að alls konar viðburðum, stórum sem smáum, á afmælisárinu
  • Séð yfir Garðabæ
Í upphafi árs 2016 verða liðin 40 ár frá því að Garðabær varð sérstakur kaupstaður.  Af því tilefni hefur bæjarstjórn Garðabæjar skipað afmælisnefnd sem á að gera tillögur til bæjarráðs Garðabæjar um einstaka viðburði og dagskrá hátíðarhalda.  Í nefndinni sitja formaður bæjarráðs, Áslaug Hulda Jónsdóttir, sem jafnframt er formaður nefndarinnar,  Gunnar Valur Gíslason, formaður menningar- og safnanefndar, Björg Fenger formaður íþrótta- og tómstundaráðs og þrír fulltrúar tilnefndir af minnihlutanum í bæjarstjórn þau Baldur Ó Svavarsson, Hafdís Bára Kristmundsdóttir og Bjartur Máni Sigurðsson.   

Bæjarbúar hvattir til að senda inn hugmyndir

Afmælisnefndin tók nýverið til starfa og leitar nú eftir hugmyndum bæjarbúa, félaga og fyrirtækja í bænum, um hugmyndir að alls konar viðburðum, stórum sem smáum, á afmælisárinu 2016.  Hugmyndum má koma á framfæri til afmælisnefndarinnar með því að senda t-póst á netfang Garðabæjar, gardabaer@gardabaer.is.  

Vonast er til að viðburðir á afmælisárinu verði til þess að styrkja samkennd Garðbæinga og efla bæjarbraginn.

Meðfylgjandi mynd er tekin á fyrsta fundi afmælisnefndarinnar í september, frá vinstri: 
Hafdís Bára Kristmundsdóttir, Baldur Ó Svavarsson, Hulda Hauksdóttir upplýsinga- og menningarfulltrúi, Gunnar Einarsson bæjarstjóri, Áslaug Hulda Jónsdóttir, formaður afmælisnefndarinnar, Gunnar Valur Gíslason, formaður menningar- og safnanefndar, Björg Fenger, formaður íþrótta- og tómstundaráðs og Bjartur Máni Sigurðsson.