22. sep. 2015

Vilji til að taka á móti flóttafólki

Garðabær hefur lýst formlega yfir vilja til að taka á móti flóttafólki á þessu ári
  • Séð yfir Garðabæ

Garðabær hefur lýst formlega yfir vilja til að taka á móti flóttafólki á þessu ári og taka þannig þátt í verkefni ríkisstjórnarinnar varðandi móttöku og aðstoð við hópa flóttafólks sem væntanlegt er til landsins.

Á fundi bæjarráðs 8. september sl. var málinu vísað til umfjöllunar í fjölskylduráði og mannréttinda- og forvarnanefnd og bæjarstjóra jafnframt falið að vinna áfram að málinu.