Sólinni fagnað á Ísafold
Íbúar á Ísafold hafa notið sólarblíðunnar í dag og í gær.
Íbúar á Ísafold í Sjálandi hafa tekið veðurblíðunni í dag og í gær fagnandi og notið þess að vera úti við sína daglegu iðju.
Í gær nutu íbúar þess að drekka kaffið sitt úti, sinna hannyrðum og stunda daglega hreyfingu. Í dag verður boccia leikið úti og eldhúsið mun bjóða upp á ís og sumarkaffi.
Fleiri myndir eru á vef Ísafoldar.