14. ágú. 2015

Hátíðarfundur bæjarstjórnar skipaður kvenbæjarfulltrúum

Í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna til Alþingis verður fundur bæjarstjórnar Garðabæjar 20. ágúst nk. eingöngu skipaður kvenbæjarfulltrúum. Fundurinn verður haldinn í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju kl. 17-19. Fundurinn er öllum opinn og konur í Garðabæ eru hvattar til að fjölmenna.
  • Séð yfir Garðabæ

Til fundarins eru boðaðar sérstaklega stúlkur sem luku grunnskólanámi í vor, stúlkur í ungmennaráði, konur sem sitja í fastanefndum bæjarins og konur sem hafa verið fulltrúar í hreppsnefnd eða bæjarstjórn Garðabæjar / Álftaness.

Að hátíðarfundi loknum verður boðið upp á veitingar og skemmtiatriði þar sem fram koma Kvennakór Garðabæjar og einnig Ragnheiður Gröndal söngkona.

Sjá frétt á vef Garðabæjar um tillögu þess efnis að halda hátíðarfund bæjarstjórnar. Í greinargerð með tillögu Sigríðar Huldu Jónsdóttur forseta bæjarstjórnar um að halda fund með kvenbæjarfulltrúum kemur fram að ,, mikilvægt er að minnast þessa atburðar sem hafði mikla þýðingu varðandi  jafnrétti kynjanna og jafnframt að láta hann vera hvatningu til að auka lýðræðislega umræðu og kosningaþátttöku ungs fólks.
Bæjarstjórn Garðabæjar leggur sitt að mörkum með því að bjóða ungum stúlkum í Garðabæ til fundarins til að hvetja þær og allt ungt fólk til virkrar þátttöku í samfélaginu með því meðal annars að nýta ávallt kosningarétt sinn“.

Viðburður á fésbókarsíðu Garðabæjar