15. maí 2015

Samstarf Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs og lögreglunnar um átak gegn heimilisofbeldi

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri Hafnarfjarðar og Sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu undirrituðu í dag samstarfsyfirlýsingu um átak gegn heimilisofbeldi. Í yfirlýsingunni felst að frá og með mánudeginum 18. maí taka velferðasvið sveitarfélaganna og lögreglan upp nýjar verklagsreglur sem tryggja eiga markvissari viðbrögð og úrræði gegn ofbeldi á heimilum.
  • Séð yfir Garðabæ

Markmið átaksins er að gefa skýr skilaboð um að heimilisofbeldi verði ekki liðið.  Þannig vinna lögreglan og félagsþjónusta sveitarfélaganna saman að því að aðstoða fjölskyldur á markvissan hátt, tryggja öryggi barna og veita þeim stuðning og leiðbeina. Þjónusta við þolendur heimilisofbeldis er bætt til muna, málin eru rannsökuð betur og upplýsingar um úrræði og eftirfylgd með þolenda er aukin. Þá fá gerendur aðstoð í formi ráðgjafar og boð um meðferð.
 
Sveitarfélögin Kópavogur, Hafnarfjörður og Garðabær hafa verið með sameiginlega bakvakt barnaverndar frá því í janúar 2014. Bakvaktin mun sinna öllum útköllum er varða heimilisofbeldi, bæði hjá barnafjölskyldum og barnlausum fjölskyldum.  Lögregla óskar eftir aðkomu starfsmanna.  Á dagvinnutíma sinna starfsmenn félagsþjónustunnar útköllum. Eftirfylgd með lögreglu er sinnt í hverju sveitarfélagi fyrir sig sem og önnur vinna með fjölskyldurnar.
 
Reykjavík og Mosfellsbær hafa bæði undirritað sambærilega yfirlýsingu um átak gegn heimilisofbeldi.
 
Meðfylgjandi er mynd sem tekin var við undirritunina sem fram fór í bæjarstjórnarsal Kópavogs í dag. Frá vinstri: Sigríður Björk Guðjónsdóttir, Ármann Kr. Ólafsson, Haraldur L. Haraldsson og Gunnar Einarsson.