8. maí 2015

Opið hús í leikskólum föstudaginn 8. maí

Leikskólar í Garðabæ bjóða bæjarbúum á opið hús föstudaginn 8. maí nk kl. 15.00 – 17.00. Þennan dag gefst fjölskyldum, og öllum þeim sem áhuga hafa, gott tækifæri til að kynna sér leikskólana og starf þeirra. Börnin hafa mjög gaman af því að bjóða vinum og vandamönnum í heimsókn í leikskólann sinn og sýna þeim stolt og ánægð það, sem þau hafa verið að gera yfir veturinn.
  • Séð yfir Garðabæ

Opið hús á sér oft langan aðdraganda. Starfsfólk hefur geymt verk barnanna yfir veturinn.  Þau eru nú tekin fram og hengd upp eða höfð til sýnis á annan hátt.  Bækur, ljósmyndir og leikföng eru látin liggja frammi og einnig er hægt að leika sér á útileiksvæði leikskólans, ef veður leyfir.

Foreldrar væntanlegra leikskólabarna eru sérstaklega boðnir velkomnir og fá þarna gott tækifæri til að kynna sér það sem hver og einn leikskóli hefur upp á að bjóða.

Nánar um leikskóla í Garðabæ