Afgreiðslutími sundlauga um páska
Sundlaugar Garðabæjar verða opnar á Skírdag fimmtudaginn 2. apríl, laugardaginn 4. apríl og á öðrum í páskum mánudaginn 6. apríl.  Lokað verður í sundlaugunum á Föstudaginn langa og á Páskadag.  Íþróttahúsin eru opin á sama tíma til æfinga en TM-Höllin (Mýrin) og íþróttamiðstöðin í Sjálandi verða lokaðar alla dagana.
    
Sundlaugar Garðabæjar verða opnar á Skírdag fimmtudaginn 2. apríl, laugardaginn 4. apríl og á öðrum í páskum mánudaginn 6. apríl.  Lokað verður í sundlaugunum á Föstudaginn langa og á Páskadag.  Íþróttahúsin eru opin á sama tíma til æfinga en TM-Höllin (Mýrin) og íþróttamiðstöðin í Sjálandi verða lokaðar alla dagana.  Athugið að frístundabíll ekur ekki í dymbilvikunni. 
Hér fyrir neðan er afgreiðslutími sundlauga Garðabæjar, Álftaneslaug og Ásgarðslaug, um páskana. Garðakortin gilda jafnt í báðar laugarnar.  
| Dagur | Álftaneslaug | Ásgarðslaug | 
| Skírdagur, fimmtudagur 2. apríl | 10:00-18:00 | 08:00-18:00 | 
| Föstudagurinn langi, 3. apríl | lokað | lokað | 
| Laugardagur 4. apríl | 10:00-18:00 | 08:00-18:00 | 
| Páskadagur, 5. apríl | lokað | lokað | 
| Annar í páskum, 6. apríl | 10:00-18:00 | 08:00-18:00 | 
Sjá einnig afgreiðslutíma allra sundlauga á höfuðborgarsvæðinu um páskana. (pdf-skjal)
