12. mar. 2015

Huga þarf að frárennslislögnum og niðurföllum

Veðurstofan hefur sent frá sér viðvörun vegna vatnavaxta og hláku, en spáð er mikilli rigningu sunnan og suðaustanlands með hlýindum síðdegis á morgun, föstudaginn 13. mars fram á sunnudag 15. mars auk hlýinda um allt land.
  • Séð yfir Garðabæ

Búast má við miklum leysingum um allt land þótt úrkoma verði mest sunnan og suðaustanlands. Þar sem mikill nýlega fallinn snjór er víða um land má búast við vatnsflóðum, krapaflóðum og aurflóðum. Þannig aðstæður geta skapast á nokkurra ára fresti. Hafa skal þetta í huga áður en ferðalög eru skipulögð.

Garðbæingar eru hvattir til að huga vel að frárennslislögnum og niðurföllum við hús sín og hreinsa ís o.þ.h. ef við á til að fyrirbyggja vatnstjón.

Sjá einnig frétt á vef Veðurstofunnar