27. feb. 2015

Tónleikaröðin Þriðjudagsklassík hefst á ný

Tónleikaröðin Þriðjudagsklassík í Garðabæ er að hefja sitt þriðja starfsár. Í boði verða fernir tónleikar, fyrsta þriðjudagskvöld í mánuði, frá mars til júní, í sal Tónlistarskóla Garðabæjar í Kirkjulundi. Í ár er það fjölbreytileikinn sem ræður ríkjum. Á fyrstu tónleikunum, þriðjudaginn 3. mars nk kl. 20., er það Tinna Þorsteinsdóttir, píanóleikari sem leiðir áheyrendur um hljóðheim slaghörpunnar.
  • Séð yfir Garðabæ

Tónleikaröðin Þriðjudagsklassík í Garðabæ er að hefja sitt þriðja starfsár. Í boði verða fernir tónleikar, fyrsta þriðjudagskvöld í mánuði, frá mars til júní, í sal Tónlistarskóla Garðabæjar í Kirkjulundi. Í ár er það fjölbreytileikinn sem ræður ríkjum. Á fyrstu tónleikunum, þriðjudaginn 3. mars nk kl. 20., er það Tinna Þorsteinsdóttir, píanóleikari sem leiðir áheyrendur um hljóðheim slaghörpunnar. Tinna er þekkt fyrir einkar frumlegan og heillandi flutning á verkum samtímatónlistar og hefur sérhæft sig í flutningi verka fyrir dótapíanó.  Að tónleikaröðinni standa menningar- og safnanefnd Garðabæjar og listrænn stjórnandi er Ingibjörg Guðjónsdóttir söngkona og kórstjóri.

Hér má sjá nánari upplýsingar um dagskrá fyrstu tónleikanna þriðjudaginn 3. mars. Miðasala er á staðnum. 

Þriðjudagsklassík á facebook

Aðrir tónleikar á vorönn

Þriðjudaginn 7. apríl flytja þær Hallveig Rúnarsdóttir, sópransöngkona og Hrönn Þráinsdóttir, píanóleikari efnisskrá sem ber yfirskriftina Speglasalur tilfinninganna. Hallveig hefur sl. ár verið einkar áberandi í íslensku sönglífi og hampaði m.a. Íslensku tónlistarverðlaununum í fyrra sem söngkona ársins.

Þriðjudaginn 5. maí er það Gunnar Kvaran sem kemur fram ásamt Elísabetu Waage, hörpuleikara og leika þau mörg af fallegustu verkum tónbókmenntanna fyrir selló og hörpu. Gunnar Kvaran þarf var að kynna en hann er einn af fremstu sellóleikurum þjóðarinnar. Gunnar hefur haldið fjölda tónleika bæði hér heima og erlendir og hlotið verðlaun og viðurkenningar í þágu menningar og mannúðarmála.

Á síðustu tónleikum Þriðjudagsklassíkur, þriðjudaginn 2. júní, mun systkinatríóið Ó Ó Ingibjörg stíga á stokk. Það er skipað þeim systkinum og Guðjónsbörnum Ingibjörgu, sópransöngkonu, Óskari, saxofónleikara og Ómari, gítarleikara. Tríóið leiðir áheyrendur um heillandi hljóðheim þar sem klassík og jass mætast og úr verður spennandi og tilraunakenndur bræðingur ólíkra tónlistarstefna. Á tónleikunum fær tríóið til liðs við sig Eyþór Gunnarsson, píanóleikara og Matthías Hemstock, slagverksleikara.