Skíðasvæðin opin lengur í vetrarfríinu
Þessa dagana er vetrarfrí í grunnskólum Garðabæjar og af því tilefni verður opið lengur á skíðasvæðinu í Bláfjöllum dagana 12.-13. febrúar eða frá kl. 11 til 21 að því gefnu að veður leyfi. Einnig verður opið lengur að hluta til í næstu og þarnæstu viku á skíðasvæðunum vegna vetrarfría annarra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Lengri opnunartími vegna vetrarfría á höfuðborgarsvæðinu
Fimmtudag 12. og föstudag 13. febrúar opið í Bláfjöllum frá kl. 11-21.
Fimmtudag 19. febrúar og föstudag 20. febrúar opið í Bláfjöllum og Skálafelli frá kl. 11-21.
Mánudag 23. febrúar og þriðjudag 24. febrúar opið í Bláfjöllum frá kl. 11-21.
Fimmtudag 26. febrúar og föstudag 27. febrúar opið í Bláfjöllum frá kl. 11-21.
Tvöfaldar rútur verða alla þessa daga. Kl. 11:00 og 16:15 frá Olís Mjódd. Úr fjallinu kl. 15:00 og 21:00. Þessa tvo daga sem Skálafell verður opnað fer rútan þangað einnig á sömu tímasetningum. Kemur við í Snæland í Mosfellsbæ kl. 11:20 og 16:35.
Dagskorta- og klukkustundakortasala fer fram á tveimur N1 stöðvum. Annarsvegar við Lækjargötu Hafnarfirði og í Ártúnsbrekku á leiðinni upp eftir. Dagskorta og klukkustundarkort eru einnig til sölu í skálum skíðadeilda á svæðinu, um helgar.
Á vef skíðasvæðanna er hægt að sjá upplýsingar um hvort skíðasvæðin séu opin hverju sinni, þar eru líka upplýsingar um verð, skíða- og brettaleigu og fleira. Upplýsingasími skíðasvæðanna er 530 3000.
Sjá einnig fésbókarsíðu skíðasvæðanna.