5. des. 2014
Sjálandsskóli kominn í jólabúning
Síðustu daga hafa nemendur og starfsfólk Sjálandsskóla unnið að því að koma skólanum í jólabúning. Búið er að þekja gluggana fyrir framan bókasafnið með fallegum gluggamyndum eftir nemendur í 7. – 10. bekk.
Síðustu daga hafa nemendur og starfsfólk Sjálandsskóla unnið að því að koma skólanum í jólabúning. Búið er að þekja gluggana fyrir framan bókasafnið með fallegum gluggamyndum eftir nemendur í 7. – 10. bekk. Einnig má finna víða um skólann ýmislegt jólaskraut eftir nemendur. Á vef Sjálandsskóla,
www.sjalandsskoli.is, er hægt að sjá fréttir af skólastarfinu.