Aðventudagskrá Hönnunarsafns Íslands
Jóladagatal Hönnunarsafns Íslands verður opnað á hverjum degi í desember fram að jólum. Í anddyri safnsins er búið að breyta glugga í jóladagatal þar sem einn hlutur úr safneigninni er sýndur hverju sinni. Áhersla er lögð á að draga fram fjölbreytnina í safneign Hönnunarsafnsins. Á fésbókarsíðu safnsins og á vefsíðu þess er hægt að sjá umfjöllun um hlutina sem birtast í jóladagatalinu. Nýr hlutur birtist kl. 12:00 hvern dag.
Hádegisleiðsagnir á föstudögum
Á hverjum föstudegi fram að jólum verður boðið upp á hádegisleiðsagnir í Hönnunarsafninu um sýninguna Ertu tilbúin frú forseti? Leiðsagnirnar hefjast kl. 12:15 og áhersla verður lögð á afmarkaðan hluta sýningarinnar og umfjöllunarefnið hverju sinni verður kynnt á vef og fésbókarsíðu safnsins. Í Hönnunarsafninu eru nú tvær sýningar, Ertu tilbúin frú forseti? og sýningin Prýði. Safnið er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 12-17 og er til húsa að Garðatorgi 1. Laugardaginn 6. desember verður boðið upp á ókeypis aðgang í Hönnunarsafninu í tilefni þess að þann dag verða ljósin tendruð á vinabæjarjólatrénu á Garðatorgi.