26. nóv. 2014

Jóla- og góðgerðardagur á Álftanesi

Laugardaginn 29. nóvember nk. verður hinn árlegi jóla- og góðgerðardagur á Álftanesi á vegum foreldrafélags Álftanesskóla og fleiri félaga á Álftanesi.
  • Séð yfir Garðabæ

Laugardaginn 29. nóvember nk. verður hinn árlegi jóla- og góðgerðardagur á Álftanesi á vegum foreldrafélags Álftanesskóla og fleiri félaga á Álftanesi. Dagskráin verður haldin í íþróttamiðstöðinni á Álftanesi frá kl. 12-16. Fjölbreytt dagskrá verður í boði þennan dag og meðal þeirra sem koma fram eru Ingó, Stefán Hilmarsson, kórar syngja og nemendur úr Álftanesskóla syngja og dansa og verða með tískusýningu.  Á staðnum verða ýmis félög og einstaklingar með söluborð þar sem verður hægt að versla handverk, hönnunarvörur, kaffiveitingar og margt fleira.  Allur ágóði af leigu borðanna rennur til góðs málefnis. Líknarsjóður Álftaness tekur á móti AUKApakkanum og Rauði krossinn í Garðabæ tekur á móti fatapokanum.

Að lokinni dagskrá innandyra verða ljósin tendruð á jólatrénu fyrir utan íþróttamiðstöðina og dagskráin utandyra hefst kl. 16:15.  Þar verður dansað í kringum jólatréð og jólasveinar mæta á staðinn.  Hér á vef Garðabæjar er hægt að sjá dagskrá jóla- og góðgerðardagsins næsta laugardag.