21. okt. 2014

Lið Garðabæjar komst áfram

Lið Garðabæjar stóð sig vel í fyrstu umferð spurningaþáttarins Útsvars og hafði betur gegn Hveragerði föstudagskvöldið 17. október sl. Garðbæingar fengu 57 stig en Hveragerði 47 stig að leikslokum.
  • Séð yfir Garðabæ

Lið Garðabæjar stóð sig vel í fyrstu umferð spurningaþáttarins Útsvars og hafði betur gegn Hveragerði föstudagskvöldið 17. október sl. Garðbæingar fengu 57 stig en Hveragerði 47 stig að leikslokum.  Í liði Garðabæjar eru þau Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir, Ásgrímur Gunnarsson og Unnur Alma Thorarensen.  Útsvar er á dagskrá sjónvarpsins á föstudagskvöldum í vetur eins og undanfarin ár.  Næsta umferð hefst í desember en ekki er búið að draga um hvaða lið mætast í annarri umferð. 

Hér á vef RÚV er hægt að sjá nánari upplýsingar um viðureignir vetrarins í Útsvari.