17. okt. 2014

Garðabær mætir Hveragerði í Útsvari

Garðabær tekur þátt í spurningaþættinum Útsvari í ríkissjónvarpinu föstudagskvöldið 17. október kl. 20. Í liði Garðabæjar eru Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir, Ásgrímur Gunnarsson og Unnur Alma Thorarensen.
  • Séð yfir Garðabæ

Garðabær tekur þátt í spurningaþættinum Útsvari í ríkissjónvarpinu föstudagskvöldið 17. október kl. 20.  Í liði Garðabæjar eru Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir, Ásgrímur Gunnarsson og Unnur Alma Thorarensen.  Garðabær mætir Hveragerði í fyrstu umferð og áhorfendur eru velkomnir að fylgjast með viðureigninni í beinni útsendingu og mæta þá hálftíma fyrir útsendingu í sjónvarpssal í Efstaleiti.  Umsjónarmenn þáttarins eru sem fyrr þau Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir.

Áfram Garðabær!

Sjá nánar hér á vef RÚV