20. jún. 2014

Munir úr Hönnunarsafni Íslands í Norræna húsinu og Hannesarholti

Í tilefni af komu Viktoríu krónprinsessu Svíþjóðar og eiginmanns hennar Daníels prins til Íslands dagana 18. og 19. júní verða valdir munir úr safneign Hönnunarsafn Íslands til sýnis frá 17. – 22. júní í Norræna húsinu og Hannesarholti.
  • Séð yfir Garðabæ
Í tilefni af komu Viktoríu krónprinsessu Svíþjóðar og eiginmanns hennar Daníels prins til Íslands dagana 18. og 19. júní verða valdir munir úr safneign Hönnunarsafn Íslands til sýnis frá 17. – 22. júní.

Í Norræna húsinu og í Hannesarholti verða sýndir nokkrir munir úr Sænsku glergjöfinni sem Karl Gústaf Svíakonungur afhenti Hönnunarsafni Íslands til varðveislu fyrir tíu árum, þegar hann kom hingað til lands í fylgd konu sinnar, Sylvíu drottningar og dóttur þeirra, Viktoríu krónprinsessu. Þessi  verk mynda dýrmætan stofn í safneign safnsins. Þarna er um að ræða glæsilegt úrval sænskrar glerlistar eftir samtímalistamenn, munirnir eru gefnir af örlæti þeirra til Íslendinga.

Auk þess verða til sýnis í Norræna húsinu húsgögn úr safneign safnsins eftir íslenska hönnuði sem eru framleidd fyrir alþjóðamarkað af sænskum framleiðendum. Svíþjóð hefur á síðustu árum verið sú erlenda þjóð sem hefur hvað best stutt við íslenska hönnun með framleiðslu og gefst hér tækifæri til að sýna verk nokkurra af okkar þekktustu hönnuðum í dag.

Hönnuðurnir eru: Sigurður Gústafsson - Källemo, Sigríður Heimisdóttir - IKEA, Katrína Ólína Pétursdóttir (með Michael Young) - Swedese og Chuck Mack – Design  House Stockholm.