1. sep. 2014
Stjarnan bikarmeistari kvenna í knattspyrnu 2014
Stjarnan sigraði Selfoss 4-0 á Laugardalsvelli og vann þar með bikarmeistaratitil kvenna
Stjarnan hampaði bikarmeistaratitlinum á laugardag þegar stelpurnar unnu Selfoss 4-0 á Laugardalsvelli. Harpa Þorsteinsdóttir íþróttakona Stjörnunar fór á kostum í leiknum og skoraði þrjú mörk. Þetta er í annað sinn sem meistaraflokkslið Stjörnunnar hampar þessum eftirsótta titli. Innilega til hamingju með bikarmeistaratitilinn Stjörnustelpur sem og allir Garðbæingar og Stjörnufólk.