19. ágú. 2014

Stjarnan - Inter Milan - fjölskylduhátíð og rútuferðir

Upphitun fyrir leik Stjörnunnar og Inter Milan verður á miðvikudag 20. ágúst frá kl. 18-19.45 á Stjörnutorgi við Samsungvöllinn. Garðabær býður upp á rútuferðir fram og tilbaka á leikinn.
  • Séð yfir Garðabæ

Stjarnan mætir stórliðinu Inter Milan í um­spili um sæti í riðlakeppni Evr­ópu­deild­ar­inn­ar á miðvikudag, 20. ágúst kl. 21 á Laugardalsvelli. Árangur Stjörnunnar í Evrópukeppninni til þessa er sögulegur. Ekk­ert ís­lenskt lið hef­ur náð jafn góðum árangri og Stjarnan nú á sínu fyrsta ári í Evr­ópu­keppn­inni, þegar hún hefur leikið sex leiki án taps.

Á Stjörnutorgi fyrir framan Samsungvöllinn verður sannkölluð Evrópudeildar stemmning fyrir leikinn sem hefst kl. 18:00 og stendur til 19:45.  Allir eru hvattir til að mæta á upphitun fyrir leikinn, foreldrar, iðkendur, afar, ömmur og aðrir Garðbæingar. Garðabær býður öllum fríar rútuferðir á leikinn og heim aftur.

Grillaðir verða hamborgarar á Stjörnutorgi auk þess sem boðið verður upp á andlitsmálun, hoppukastala og tónlist.  Einnig verður til sölu á svæðinu sérstakur Stjörnuvarningur fyrir leikinn.