1. júl. 2014

Snyrtilegar lóðir

Umhverfisnefnd Garðabæjar óskar eftir ábendingum frá bæjarbúum um snyrtilegar lóðir íbúðarhúsnæðis og fyrirtækis 2014.
  • Séð yfir Garðabæ

Umhverfisnefnd Garðabæjar óskar eftir ábendingum frá bæjarbúum um snyrtilegar lóðir íbúðarhúsnæðis og fyrirtækis 2014.

Einnig er leitað ábendinga um snyrtileg opin svæði og snyrtilega götu.

Umhverfisnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi. Ábendingar um lóðir og svæði sem koma til greina í ár þarf að senda inn fyrir 7. júlí nk.

Hægt er að skila ábendingum í þjónustuver Garðabæjar, Garðatorgi 7, sími: 525 8500 eða til umhverfisstjóra í netfangið: erlabil@gardabaer.is  fyrir 7. júlí nk.

Umhverfisnefnd