Lítið um útstrikanir í kosningunum
Kjörstjórn Garðabæjar hefur komið saman til að fara yfir og skrá útstrikanir og fjölda breyttra lista við bæjarstjórnarkosningarnar sem fram fóru 31. maí sl.
Í öllum tilfellum er um óverulegar breytingar að ræða sem hafa engin áhrif á niðurröðun sæta. Fjöldi breyttra seðla var hlutfallslega minnstur hjá Samfylkingunni eða 0,3% og mestur hjá Sjálfstæðisflokki 3,6%.
Þeir sem hlutu flestar útstrikanir hjá hverjum lista voru:
Gunnar Einarsson Sjálfstæðisflokki - 68 útstrikanir (1,74%)
María Grétarsdóttir Fólkinu í bænum - 7 útstrikanir (1,07%)
Garðar Jóhannsson Framsóknarflokki - 5 útstrikanir (1,14%)
Steinþór Einarsson Samfylkingunni - 2 útstrikanir (0,3%)
Guðrún Elín Herbertsdóttir og Auður Hallgrímsdóttir Bjartri framtíð - 3 útstrikanir hvor (0,3%)
Kjósendur geta aðeins strikað út frambjóðendur af þeim lista sem þeir sjálfir kjósa og því segja hlutfallstölurnar til um hlutfall kjósenda hvers lista sem strikaði viðkomandi nafn út.
Skjal sem sýnir nánari tölfræði yfir útstrikanir og breytta lista.