Listadagar barna og ungmenna framundan
Listadagar barna og ungmenna í Garðabæ verða haldnir í sjötta sinn dagana 24. apr – 3. maí. Dagskráin spannar um eina og hálfa viku og fer að miklu leyti fram í skólum bæjarins. Garðbæingar eru hvattir til að líta við í skólum bæjarins þessa daga og fylgjast með því skapandi starfi sem þar fer fram.
Sýningar í íþróttamiðstöðvum, bókasafni og víðar
Í leik- og grunnskólum bæjarins eru ýmis verk til sýnis í húsakynnum skólanna en auk þess ætla margir skólar að sýna verk utan skólanna. Í anddyrum íþróttamiðstöðvanna í Ásgarði og Álftanesi eru listsýningar og einnig er hægt að skoða listaverk eftir nemendur í bókasafninu á Garðatorgi. Leikskólinn Sunnuhvoll hefur sett upp sýningu í Okkar bakarí í Iðnbúð og leikskólinn Bæjarból verður með sýningu í Pizzunni í Smiðsbúð.Félagsmiðstöðin Garðalundur og Garðaskóli hafa árlega sett upp söngleik/leikrit sem verður sýnt í Listadagavikunni. Sýningar verða auglýstar á vef Garðalundar, www.gardalundur.is og hafa þær ávallt verið vinsælar og vel sóttar.
Listasmiðja í bókasafninu
Í Bókasafni Garðabæjar verður haldin listasmiðja fyrir börn og foreldra laugardaginn 26. apríl þar sem gömlum bókum verður breytt í listaverk. Listasmiðjan er ókeypis en skrá þarf þátttöku fyrirfram á netfanginu helgasif@gardabaer.is í síðasta lagi föstudaginn 25. apr. Sjá nánar hér.Öflugt listnám í FG
Í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ er öflugar listnámsbrautir eins og myndlistarbraut, fata- og textílhönnunarbraut og leiklistarbraut. Í lok apríl /byrjun maí verða haldnar lokasýningar nemenda af þessum brautum, sumar sýningar verða haldnar innan skólans en aðrar utan skólans. Á fésbókarsíðu listbrautarinnar er hægt að fylgjast með ýmsu sem er í gangi hjá þeim: www.facebook.com/ListnamfgSameiginleg listadagahátíð - sirkusstemning
Föstudaginn 2. maí kl. 12:30 verður haldin sameiginleg hátíð á túninu við Vífilsstaði fyrir elstu börn leikskóla og nemendur í grunnskólunum. Gói verður kynnir og Sirkus Íslands skemmtir áhorfendum.Opið hús
Leikskólar í bænum verða með opið hús laugardaginn 3. maí þar sem gestir og gangandi geta kynnt sér leikskólanna og starf þeirra. Í síðustu vikunni í apríl geta bæjarbúar einnig heimsótt skóla og skoðað þær sýningar sem þar eru á göngum og í stofum og allir eru velkomnir.
Hér var stiklað á stóru í upptalningu á því sem verður í boði á listadögunum en allir geta kynnt sér dagskrána hér á heimasíðu Garðabæjar, einnig hefur dagskráin verið gefin út í bækling sem var dreift í hús í Garðabæ.