1. nóv. 2013

Fengu gæðastimpla fyrir eTwinning verkefni

Flataskóli vann þó nokkur verkefni á samskiptavefnum eTwinning á síðastliðnu ári og hefur nú verið að fá gæðastimpla fyrir nokkur þeirra frá Landsskrifstofu Menntaáætlunar Evrópusambandsins.
  • Séð yfir Garðabæ

Flataskóli vann þó nokkur verkefni á samskiptavefnum eTwinning á síðastliðnu ári og hefur nú verið að fá gæðastimpla fyrir nokkur þeirra frá Landsskrifstofu Menntaáætlunar Evrópusambandsins. Þetta eru verkefnin „Christmas around Europe“ sem Ragna Gunnarsdóttir stýrði, „Tasty Flags“ sem Kristín og Hafþór Þorleifsbörn sáu um, „European Chain Reaction“ sem Ólöf Sighvatsdóttir vann með í eðlisfræðitímum og „Schoolovision 2013“ sem Jón Bjarni Jónsson og Kolbrún Hjaltadóttir höfðu umsjón með.

Þegar verkefni hafa fengið þennan Evrópugæðastimpil eru þau gjaldgeng til frekari viðurkenningar hjá Evrópusambandinu. Schoolovision 2009 og 2012 hafa fengið slíkar viðurkenningar á ráðstefnum hjá Evrópusambandinu. Á vef Flataskóla kemur fram að viðurkenningarnar hvetji starfsfólk skólans til að halda áfram að vinna á þennan hátt með nemendum sínum.