23. okt. 2013

Engar landbætur greiddar fyrir nýjan Álftanesveg

Að gefnu tilefni: Nýr Álftanesvegur liggur á sama stað og núverandi vegur í landi Selskarðs og því eru og verða engar bætur greiddar vegna lagningar hans
  • Séð yfir Garðabæ

Að gefnu tilefni er tekið fram að engar bætur vegna lands hafa verið eða verða greiddar vegna lagningar nýs Álftanesvegar.

Sá hluti vegstæðisins sem liggur um land Selskarðs er á sama stað og núverandi Álftanesvegur. Land Selskarðs verður því ekki skert að neinu leyti.

Þar sem nýr Álftanesvegur fer um Garðahraun liggur hann í landi Garðabæjar og tengist núverandi vegi við landamörk Garðabæjar og Selskarðs.

Engar landbætur eru því greiddar vegna lagningar Álftanesvegar.

Sjá frétt á vef Vegagerðarinnar.