14. okt. 2013

Mikill sóknarhugur á fundi lykilaðila í menntamálum

Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) efndu fyrir helgina til samráðs- og stefnumótunarfundar um menntamál
  • Séð yfir Garðabæ
Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) efndu fyrir helgina til samráðs- og stefnumótunarfundar um menntamál með þátttöku nærri 90 fulltrúa helstu fagaðila, hagsmunahópa, félagasamtaka og stjórnvalda í menntamálum. Fundurinn er liður í verkefninu „Skólar og menntun í fremstu röð“ sem er hluti af sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins. Markmið verkefnisins er að móta sameiginlega framtíðarsýn og aðgerðaáætlun um hvernig megi efla skólastarf á svæðinu, frá leikskóla til háskóla.

Fundinng sóttu m.a. fulltrúar kennara, nemenda, foreldra, skólastjórnenda, aðila vinnumarkaðarins, fræðasamfélags, frjálsra félagasamtaka, menntamálaráðuneytisins, sveitarstjórnarmanna og fulltrúa úr stjórnsýslu fræðslumála hjá sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins.

Á fundinum var unnin greining á helstu styrkleikum, veikleikum og áskorunum skólastarfs á höfuðborgarsvæðinu og verða niðurstöðurnar nýttar sem innlegg í mótun tillagna um aðgerðir sem sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu geta ráðist í, til að efla skólastarf. Þátttaka á fundinum fór fram úr björtustu vonum og skilaði fundurinn fjölmörgum ábendingum og tillögum sem munu nýtast í framhaldinu.

Sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins

Á vegum Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) er nú unnið að fullum krafti að gerð sóknaráætlunar fyrir höfuðborgarsvæðið. Verkefnið tengist ákvörðun ríkisstjórnar Íslands um gerð sóknaráætlunar landshluta sveitarfélaga. Markmið sóknaráætlunarinnar er að greina tækifæri til að efla atvinnu, menntun og menningu á höfuðborgarsvæðinu.

Alls er nú unnið að 16 skilgreindum verkefnum undir hatti sóknaráætlunarinnar, sem skiptast í 3 meginflokka. Þessir flokkar eru: „Skólar og menntun í fremstu röð“, „Styrking atvinnulífs á höfuðborgarsvæðinu“ og „Markaðssetning höfuðborgarsvæðisins.“ Yfirstjórn verkefnisins er í höndum stjórnar SSH og framtíðarhóps SSH. Sérstakir stýrihópar eru yfir hverjum verkefnaflokki og hefur hver verkefnaflokkur verkefnisstjóra sem sér um daglega stjórn verkefnanna. Áhersla er lögð á að ná breiðu samstarfi við fagaðila og hagsmunaaðila sem tengjast hverju viðfangsefni sem unnið er að.

Skólar og menntun í fremstu röð

Tilgangur allra verkefna í þessum flokki er að skilgreina og nýta möguleg sóknarfæri til að efla og samþætta skólastarf á öllum skólastigum með það að markmiði að skólastarf á höfuðborgarsvæðinu sé til fyrirmyndar. Verkefnið felur í sér fimm megin áherslusvið. Þau eru; mat á gæðum skólastarfs á höfuðborgarsvæðinu í alþjóðlegum samanburði,
leiðir til að auka samvinnu skólastiga frá leikskóla til háskóla, greining á skyldum höfuðborgarsvæðisins sem háskólaborgar, staða og horfur varðandi endurmenntun á vinnumarkaði og loks hvernig efla megi menntun í menningargreinum og samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í þeim efnum.

Stýrihópur verkefnaflokksins Skólar í fremstu röð er skipaður eftirfarandi: Gunnar Einarsson bæjarstjóri Garðabæjar, formaður stýrihóps, Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri Seltjarnarness, Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir formaður Félags íslenskra framhaldsskóla, Ragnar Þorsteinsson sviðsstjóri skóla-og frístundasviðs hjá Reykjavíkurborg, Anna Kristín Sigurðardóttir lektor á menntavísindasviði Háskóla Íslands, og Björn Þráinn Þórðarson framkvæmdastjóri fræðslu- og menningarsviðs Mosfellsbæjar. Verkefnastjóri er Skúli Helgason stjórnmálafræðingur