Gróðursettu í Sandahlíð
Um 250 nemendur úr Sjálandsskóla og Alþjóðaskólanum fóru í Sandahlíð nýlega til að gróðursetja birkiplöntur
Um 250 nemendur úr Sjálandsskóla og Alþjóðaskólanum fóru í Sandahlíð nýlega til að gróðursetja birkiplöntur sem eru framlag til grunnskólanemenda úr Yrkjusjóði, þ.e. afmælissjóði frú Vígdísar Finnbogadóttur.
Börnin nutu útiverunnar í blíðskaparveðri og nýttu um leið tækifærið til að tína upp í sig bláber sem krökkt var af í hlíðinni.