20. maí 2014

Nýsköpunarkennari grunnskólanna 2014

Sædís S. Arndal, kennari í Hofsstaðaskóla í Garðabæ hefur verið valin nýsköpunarkennari grunnskólanna 2014.
  • Séð yfir Garðabæ

Sædís S. Arndal, kennari í Hofsstaðaskóla í Garðabæ hefur verið valin nýsköpunarkennari grunnskólanna 2014.

Þetta er í fyrsta sinn sem kennari hlýtur VILJA – hvatningarverðlaun Nýsköpunarkeppni grunnskólanna (NKG) og nafnbótina nýsköpunarkennari grunnskólanna.
Tilgangur VILJA – hvatningaverðlauna NKG er að hvetja kennara til dáða, draga fram og deila aðferðum sem efla sköpunargáfu nemenda í ferlinu frá hugmynd til framkvæmdar og hvetja til þátttöku í Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda.

Sædís hefur kennt nýsköpun í Hofsstaðskóla sl. 10 ár. Nemendur fá hugmyndabók í upphafi vetrar og eru hvattir til að skrá niður allar hugmyndir sem þeir fá og vinna síðan úr þeim í kennslustundum. Í skólanum er guli veggurinn svokallaði notaður til að sýna hugmyndir nemenda, en oft má sjá nemendur standa við vegginn, skeggræða og pæla.

Árið 2011 vann Hofsstaðaskóli farandbikar til eignar eftir að hafa þrjú ár í röð átt hlutfallslega flestar innsendar umsóknir miðað við nemendafjölda. Nú í ár hlýtur skólinn bikar til eignar öðru sinni en í ár sendu nemendur í 5.-7. bekk inn tæplega 800 umsóknir sem gerir nærri 4 umsóknir á hvern nemanda að meðaltali.

Samstarfsfólk Sædísar í Hofsstaðaskóla óskar henni innilega til hamingju með viðurkenninguna.