23. ágú. 2013

Óskað eftir ábendingum um liðsmenn í Útsvar

Spurningaþátturinn Útsvar heldur göngu sína áfram í Sjónvarpinu í vetur með þátttöku sveitarfélaga. Auglýst er eftir ábendingum um einstaklinga, konur og karla, til að vera í liði Garðabæjar í vetur.
  • Séð yfir Garðabæ

Spurningaþátturinn Útsvar heldur göngu sína áfram í Sjónvarpinu í vetur með þátttöku sveitarfélaga.  Auglýst er eftir ábendingum um einstaklinga, konur og karla,  til að vera í liði Garðabæjar í vetur.

Æskilegt er að viðkomandi hafi góða almenna þekkingu og einnig er gott að hafa sérþekkingu á t.d. náttúrufræði, sagnfræði eða fornbókmenntum.  Bónus er auðvitað ef viðkomandi kann að leika og/eða giska vel í látbragðsleik.

 

Ábendingar um nöfn og helstu upplýsingar um hugsanlega keppendur má senda á netfang Garðabæjar  gardabaer@gardabaer.is sem allra fyrst. 
Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá Huldu Hauksdóttur upplýsingafulltrúa, hulda@gardabaer.is eða í s. 525 8500.