1. ágú. 2013

Útivistarkort Skógræktarfélagsins

Skógræktarfélag Garðabæjar hefur gefið út útivistarkort með upplýsingum um gönguleiðir og annan fróðleik á útivistarsvæðum ofan byggðar.
  • Séð yfir Garðabæ

Skógræktarfélag Garðabæjar hefur gefið út útivistarkort með upplýsingum um gönguleiðir og annan fróðleik á útivistarsvæðum ofan byggðar í Garðabæ.

Á kortinu koma fram helstu gönguleiðir um ræktunarsvæði Skógræktarfélagisns í námunda við Vífilsstaðavatn, það er Smalaholt, Sandahlíð og Vífilsstaðahlíð en þessi svæði eru vinsæl til útivistar og afþreyingar. Á svæðinum sjást nú margir myndarlegir skógarlundir sem eru afrakstur 25 ára starfsemi Skógræktarfélagsins. Útivistarkortið er gefið út í tilefni afmælisársins.

Auk þess að vinna að skógrækt hefur félagið á undanförnum árum látið skipuleggja göngustíga og áningastaði í Smalaholti og Sandahlíð. Stígakerfið hlykkjast þar um alveg upp á efstu hæðir þar sem víðsýnt er. Stígagerðin hófst sumarið 2009 þegar félagið tók þátt í atvinnuátaki með Garðabæ um verkefni á skógræktarsvæðunum.

Á kortinu er nokkur fróðleikur um skógrækt og skógræktarsvæði í Garðabæ. Þar eru myndir af algengum blómgróðri og helstu trjátegundunum. Sagt er frá skógræktarsvæðum í umsjón Skógræktarfélags Garðabæjar og öðrum áhugaverðum skógarreitum og svæðum í bæjarlandinu. Einnig er sagt frá upphafi skógræktar í Garðabæ sem má rekja til skógardaga á Vífilsstöðum vorið 1911.

Útivistarkortið er í handhægu vasabroti, unnið af Árna Tryggvasyni skiltahönnuði og ljósmyndara í samráði við stjórn félagsins. Útgáfa kortsins er styrkt af  Garðabæ.

Hægt er að nálgast í kortið í þjónustuveri Garðabæjar, Garðatorgi 7 og fljótlega verða settir upp kassar við inngang að skógræktarsvæðunum í Sandahlíð og Smalaholti.