27. maí 2013

Fimmta sæti í Schoolovision

Uppskeruhátíð í eTwinningverkefninu Schoolovision var haldin fyrr í mánuðinum. Flataskóli fékk 155 stig og hafnaði í 5. sæti af 38 með laginu "Little Talks"
  • Séð yfir Garðabæ

Uppskeruhátíð í eTwinningverkefninu Schoolovision var haldin fyrr í mánuðinum. Flataskóli fékk 155 stig og hafnaði í 5. sæti af 38 með laginu "Little Talks" og má því vel við una. Það var 6. bekkur sem útsetti lagið fyrir keppina.

Gífurleg stemmning var í hátíðarsalnum þegar verið var að telja niður. Varpað var beint frá stigagjöfinni á stórt tjald á veggnu í sal skólans og voru flestir nemendur skólans viðstaddir.

Ísrael fór með sigur af hólmi í þetta sinn, hlaut fyrsta sætið með 218 stig. Hægt er að lesa frekar um þennan viðburð á vefsíðu verkefnisins.

Í tilefni hátíðarinnar fékk skólinn heimsókn frá Stöð 2 þar sem tekið var viðtal við nemendur. Hægt er að nálgast viðtalið hér.