3. maí 2013

Vorsýning í Jónshúsi

Vorsýning félags- og íþróttastarfs eldri borgara verður opnuð í Jónshúsi miðvikudaginn 8. maí kl. 14
  • Séð yfir Garðabæ

Á sýningunni verða fjölbreyttir munir sem orðið hafa til í starfinu í vetur, m.a. leirmunir, málverk, tréskurður, glerlist og ýmiss konar handavinna.

Sýningin verður opin miðvikudaginn 8. maí og föstudaginn 10. maí kl. 09:30-16:00. Laugardaginn 11. maí er opið kl. 13:00-16:00.

Hægt er að kaupa kaffiveitingar gegn vægu verði.

Allir eru velkomnir.

Auglýsing um sýninguna

Sýnendur athugið:

Tekið verður á móti sýningarmunum í Jónshúsi mánudaginn 6. maí kl. 9.30-15.30. Allir munir þurfa að vera merktir.