Jazzhátíð Garðabæjar
Jazzhátíð Garðabæjar verður haldin í áttunda sinn fimmtudaginn 25. apríl til sunnudagsins 28. apríl nk. Hátíðin er haldin á vegum menningar- og safnanefndar Garðabæjar og listrænn stjórnandi frá upphafi hefur verið Sigurður Flosason tónlistarmaður og fyrrum bæjarlistamaður Garðabæjar. Aðalstyrktaraðili hátíðarinnar er Íslandsbanki í Garðabæ. Jazzhátíðin hefur ávallt leitast við að bjóða upp á fjölbreytta dagskrá við allra hæfi með framúrskarandi jazztónlistarmönnum sem margir hverjir eiga rætur sínar að rekja til Garðabæjar. Að þessu sinni koma tveir góðir erlendir gestir í heimsókn; kontrabassaleikarinn Edvard Nyholm Debess frá Færeyjum og Hammond-orgelleikarinn Kjeld Lauritsen frá Danmörku og leika með Íslendingum.
Dagskrá hátíðarinnar er aðgengileg hér.
Frábærir jazztónlistarmenn frá Færeyjum og Danmörku
Fyrstu tónleikarnir verða haldnir fimmtudagskvöldið 25. apríl í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju. Þá stígur á svið færeyski bassaleikarinn Edvard Nyholm Debess. Færeyingurinn Edvard hefur samið heila efnisskrá nýrrar og spennandi tónlistar fyrir íslenska jazztónlistarmenn sem flestir tengjast Garðabæ. Með honum leika Guðmundur Pétursson á gítar, Sigurður Flosason á saxófón, Agnar Már Magnússon á píanó og Matthías Hemstock á trommur. Heimsfrumflutningur í Garðabæ!
Stærstu tónleikar hátíðarinnar verða að þessu sinni haldnir á föstudagskvöldinu 26. apríl í Urðarbrunni, hátíðarsal Fjölbrautaskólans í Garðabæ. Þar verður boðið upp á ,,Stofudjass í stórum sal“ með Flosason/Lauritsen kvartettinum. Kjeld Lauritsen er fremsti Hammond orgelleikari Dana og nýtur hann mikilla vinsælda í heimalandi sínu. Lauritsen og Sigurður Flosason reka saman hljómsveit í Danmörku en hér kemur íslensk útgáfa hljómsveitarinnar fram og kynnir nýútkominn geisladisk þeirra sem ber heitið „Nightfall“, en hann hefur að geyma jazzstandarda og hefur fengið fína dóma í Danmörku. Sérstakur gestur þetta kvöld verður söngkonan Ragnheiður Gröndal. Hér er á ferðinni aðgengileg jazztónlist við allra hæfi.
Tvennir tónleikar á laugardegi
Á laugardeginum þann 27. apríl verður boðið upp á tvenna tónleika að degi til kl. 14 í Jónshúsi, við Strikið, og kl. 17 í Haukshúsi á Álftanesi. Í Jónshúsi verður boðið upp á sveiflu á Sjálandi eða swing tónleika fyrir eldri borgara. Þar verður sérhönnuð dagskrá með valinkunnum lögum swingtímans fluttum af Flosason/ Lauritsen kvartettinum. Síðdegis á laugardeginum verður boðið upp á tónleika kl. 17 í Haukshúsi á Álftanesi en þar stígur sambýlisfólkið Ragnheiður Gröndal söngkona og Guðmundur Pétursson á svið og flytja jazzperlur í dúóformi eins og þeim einkum er lagið.
Ungmennatónleikar á sunnudegi
Hátíðinni lýkur á sunnudagskvöldinu 28. apríl með flottum ungmennatónleikum í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju. Þar sýnir unga kynslóðin hvað í henni býr og fram koma Stórsveit Tónlistarskóla Garðabæjar, kvartett Önnu Grétu, hljómsveitin Fimmund og hljómsveit Tónlistarskóla Garðabæjar. Auk þess má búast við ljúfum jazztónum í miðbæ Garðabæjar að degi til á Garðatorgi og víðar þar sem jazzhátíðin verður kynnt fyrir gesti og gangandi.
Ókeypis aðgangur
Aðgangur er ókeypis á alla tónleika jazzhátíðarinnar og allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Hátíðin hefur vaxið og dafnað með árunum og íbúar á höfuðborgarsvæðinu hafa fjölmennt á hátíðina.