18. apr. 2013

Breytingar á svæðisskipulagi

Opinn kynningarfundur um breytingar á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001-2024, verður haldinn 18. apríl kl. 16.30 í Salnum í Kópavogi.
  • Séð yfir Garðabæ
Opinn kynningarfundur um breytingar á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001-2024, verður haldinn 18. apríl kl. 16.30 í Salnum í Kópavogi. Kynntar verða tillögur að breytingum sem eru tilkomnar vegna yfirstandandi endurskoðunar aðildarsveitarfélaga á aðalskipulagi.

Kynning þessi fer fram áður en breytingartillögur eru teknar til afgreiðslu hjá svæðisskipulagsnefnd og sveitarstjórnum.

Nánari upplýsingar og gögn eru á vef Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.