5. apr. 2013

Hjúkrunarheimilið Ísafold

Ísafold, nýtt og glæsilegt hjúkrunarheimili og þjónustumiðstöð á vegum Garðabæjar, verður vígð í dag. Fyrstu íbúar Ísafoldar flytja inn á morgun laugardag.
  • Séð yfir Garðabæ

Ísafold, nýtt og glæsilegt hjúkrunarheimili og þjónustumiðstöð, verður vígð í dag. Fyrstu íbúar Ísafoldar flytja inn á morgun laugardag. Ísafold sem er við Strikið í Sjálandshverfi verður rekin af Garðabæ. Rithöfundurinn Hallgrímur Helgason sem átt hefur veg og vanda af nafngiftum á Sjálandi í Garðabæ átti hugmyndina að nafni heimilisins sem stendur við hliðina á 17. júní torgi.

Ísafold er á fjórum hæðum. Hjúkrunarheimilið er á 2.-4. hæð en á jarðhæðinni verður þjónustumiðstöð fyrir eldri borgara. Ísafold verður heimili 60 einstaklinga sem búa í sex litlum einingum með heimilislegu yfirbragði og hlýleika. Í hverri einingu eru 10 einstaklingsherbergi með sér baði og eldhúsi ásamt sameiginlegu eldhúsi og borð- og setustofu. Í tilvikum hjóna er möguleiki að opna milli herbergja.

45 íbúar flytjast frá Vífilsstöðum á Ísafold laugardaginn 6. apríl en aðrir íbúar flytja inn um miðjan mánuðinn.

Á fyrstu hæð Ísafoldar er þjónustumiðstöð fyrir eldri bogara þar sem m.a. verður iðjuþjálfun, dagdvöl fyrir 20 manns, eldhús, matstofa, hárgreiðslustofa, fótaðgerðastofa, hreyfisalur, aðstaða heimaþjónustu og sjúkraþjálfun. Í byrjun mars var opnað bakarí (Okkar bakarí) í húsnæðinu sem er kærkomin þjónusta við við heimilismenn og aðra íbúa á Sjálandi.

Við hönnun hússins var farið eftir reglum Velferðarráðuneytisins um hönnun hjúkrunarheimila. Byggingin er felld inn í núverandi byggðarmunstur á Sjálandi og var horft mjög til þess að mynda skjólgóðan garð fyrir íbúa, gesti og aðra er sækja þjónustu í húsnæðinu. Húsið er því hannað sem U-laga bygging sem myndar skjólríkan garð í suðurátt, með svölum sem snúa inn í garðinn.

Við mótun á hugmyndafræði Ísafoldar verður horft til hjúkrunarheimila í fremstu röð, bæði hér á landi og erlendis. Grunngildi þjónustunnar verða sjálfræði, virkni og velferð.

Forstöðumaður Ísafoldar er Ingibjörg Valgeirsdóttir og hjúkrunarforstjóri er Borghildur Ragnarsdóttir. 

Frekari upplýsingar um Ísafold