4. apr. 2013

Sumarstörf hjá Garðabæ

Umsóknarfrestur um sumarstörf rann út í vikunni og sóttu tæplega 450 ungmenni um vinnu.
  • Séð yfir Garðabæ

Umsóknarfrestur um sumarstörf rann út í vikunni. Tæplega 450 ungmenni sóttu um vinnu í sumar.

Eins og fyrri ár fá umsækjendur sem uppfylla skilyrði um störfin og sóttu um vinnu á réttum tíma tilboð um starf hjá Garðabæ í sumar. Umsækjendum verður tilkynnt þetta í síðasta lagi í byrjun maí.

Búið er að opna fyrir umsóknir á biðlista og verður tekin ákvörðun um hvort biðlistaumsækjendur fái vinnu í maí.