30. apr. 2014

Vel heppnuð jazzhátíð

Jazzhátíð Garðabæjar var haldin í níunda sinn dagana 24.-26. apríl sl. Hátíðin bauð upp á fjölbreytt prógram að vanda og listrænn stjórnandi frá upphafi er Sigurður Flosason tónlistarmaður.
  • Séð yfir Garðabæ

Jazzhátíð Garðabæjar var haldin í níunda sinn dagana 24.-26. apríl sl. Hátíðin bauð upp á fjölbreytt prógram að vanda og listrænn stjórnandi frá upphafi er Sigurður Flosason tónlistarmaður.  Að þessu sinni voru haldnir þrennir kvöldtónleikar í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli og tónleikar í Jónshúsi, félagsmiðstöð við Strikið og í Haukshúsi á Álftanesi. Fjölmargir af þekktustu jazztónlistarmönnum landsins sem margir hverjir eiga rætur sínar að rekja til Garðabæjar tóku þátt í hátíðinni, í ár var einnig boðið upp á tónleika í jözzuðum stíl með Kvennakór Garðabæjar.  Hátíðin var vel sótt í ár og margir gestir komu kvöld eftir kvöld til að hlusta á jazz í fallegu vorveðri.

Jazzhátíðin er haldin á vegum menningar- og safnanefndar Garðabæjar og styrktaraðili er Íslandsbanki í Garðabæ. 

Fleiri myndir frá jazzhátíðinni má sjá á fésbókarsíðu Garðabæjar.