6. feb. 2013

Mikil verðmæti í óskilum

Mikið safn af óskilamunum hefur safnast upp í Hofsstaðaskóla frá því í haust. Blái hópurinn í stærðfræði í 7. bekk gerði nýlega könnun á því hversu mikil verðmæti leynast í óskilamunum.
  • Séð yfir Garðabæ

Mikið safn af óskilamunum hefur safnast upp í Hofsstaðaskóla frá því í haust. Blái hópurinn í stærðfræði í 7. bekk gerði nýlega könnun á því hversu mikil verðmæti leynast í óskilamunum. Áður en verkefnið hófst giskuðu nokkrir á veðmæti munanna og töldu þeir það vera á bilinu 100 til 500 þúsund. Eftir nánari talningu og útreikninga kom í ljós að líklegt verðmæti er um 1 milljón og 300 þúsund krónur sem samsvarar um 2.900 kr, að meðaltali á hvern nemanda skólans.

Munirnir voru flokkaðir og taldir og niðurstaðan sett í forritið Exel. Nemendur fundu út meðalverð á flíkunum með því að finna verð á netinu á þremur hlutum og reikna út meðaltalið.

Sem dæmi um verðmæti þá voru húfurnar metnar samtals á 189.000 krónur og úlpur og jakkar á 200.000 krónur.

Eins og sést á þessari frétt þá safnast mikið fyrir af óskilamunum í skólanum sem hægt væri að koma til skila ef fleiri munir væru merktir.
Þeir hlutir sem ekki verða sóttir í skólann verða gefnir til Rauða Krossins eins og gert hefur verið undanfarin ár.

Fréttina unnu nemendur í bláum hóp í 7. bekk Hofsstaðaskóla