Ljósin tendruð á vinabæjarjólatrénu
Laugardaginn 1. desember sl. voru ljósin tendruð á vinabæjarjólatrénu á Garðatorgi. Jólatréð er gjöf frá Asker, vinabæ Garðabæjar í Noregi, og þetta er í 43. sinn sem Garðbæingar fá þessa vinasendingu þaðan.
Í upphafi dagskrár lék Blásarasveit Tónlistarskóla Garðabæjar fyrir gesti og að því loknu bauð Halldóra Ingibergsdóttir varaformaður Norræna félagsins í Garðabæ alla velkomna. Sendiherra Noregs á Íslandi Dag Vernø Holter afhenti tréð fyrir hönd Asker og Áslaug Hulda Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar Garðabæjar, veitti trénu viðtöku. Skólabörn úr Barnaskóla Hjallastefnunnar sungu falleg jólalög þegar ljósin voru tendruð á jólatrénu. Í lokin komu svo þeir Giljagaur og Stekkjarstaur í heimsókn og skemmtu viðstöddum með leik og söng.
Jólastemmning á Garðatorgi
Margir Garðbæingar lögðu leið sína á torgið þennan dag til að fylgjast með jóladagskránni og kíkja við á jólamarkaðnum. Jólamarkaðurinn verður í göngugötunni á Garðatorgi alla föstudaga og laugardaga fram að jólum. Þennan dag var líka boðið upp á barnaleikrit í Bókasafninu og Hönnunarsafnið var með opið hús í tilefni dagsins. Á fésbókarsíðu Garðabæjar má sjá fleiri myndir frá laugardeginum.
Blásarasveit Tónlistarskóla Garðabæjar lék fyrir gesti í upphafi dagskrár.
Börn úr Barnaskóla Hjallastefnunnar sungu falleg jólalög.
Jólasveinarnir vöktu mikla lukku.