30. nóv. 2012

Sameining staðfest

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra undirritaði í gær staðfestingu á sameiningu sveitarfélaganna Álftaness og Garðabæjar.
  • Séð yfir Garðabæ
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra undirritaði í gær, 29. nóvember 2012, staðfestingu á sameiningu sveitarfélaganna Álftaness og Garðabæjar.

Sameiningin tekur gildi 1. janúar 2013.

Í tilkynningu ráðuneytisins um sameininguna kemur fram að nafn hins sameinaða sveitarfélags skuli vera Garðabær og að kennitalan verði sú sama og núverandi kennitala Garðabæjar. Bæjarstjórn Garðabæjar tekur yfir stjórn hins nýja sveitarfélags til loka kjörtímabilsins, þ.e. til 14. júní 2014. Núverandi bæjarstjórn Álftaness mun á þeim tíma starfa sem hverfastjórn samkvæmt 38. gr. sveitarstjórnarlaga.

Bæjarstjórn Álftaness ber einnig að skipa áheyrnarfulltrúa með búsetu á Álftanesi í allar fastanefndir hins nýja sveitarfélags.

Staðfesting ráðherra verður auglýst í B-deild Stjórnartíðinda, eins og lög gera ráð fyrir.