8. nóv. 2012

Nýir vefir

Nýir vefir Garðabæjar og grunnskóla bæjarins voru opnaðir í dag 8. nóvember.
  • Séð yfir Garðabæ

Nýir vefir Garðabæjar og grunnskóla bæjarins voru opnaðir í dag 8. nóvember. 

Nýju vefirnir hafa samræmt útlit og uppbyggingu sem á að auðvelda notendum vefjanna að rata um þá.  Við hönnun þeirra hefur veftrjánum einnig verið breytt með það að markmiði að auðvelda fólki að finna þær upplýsingar sem það leitar að.

Nýir vefir Garðabæjar og grunnskólanna eru fyrsti áfanginn að því að endurnýja alla vefi Garðabæjar en þeir eru nú 13 talsins.

Vefirnir eru á slóðinni:

www.gardabaer.is

www.flataskoli.is

www.hofsstadaskoli.is

www.gardaskoli.is og

www.sjalandsskoli.is

Vefirnir eru allir unnir í íslenska vefumsjónarkerfinu Lisu frá Advania.

Allar ábendingar um það sem betur má fara hvað varðar efni og uppbyggingu vefjanna eru vel þegnar. Þær má senda á netfangið: gardabaer@gardabaer.is