Garðbæingur á EM öldunga
Garðbæingurinn Halldór Eyþórsson stóð sig vel á Evrópumóti öldunga í kraftlyftingum
Í hnébeygju lyfti Halldór 252,5 kg og hlaut silfurverðlaun fyrir það. Í bekkpressu náði Halldór að lyfta 140 kg og 245 kg í réttstöðulyftu. Samanlagður árangur hans var 637,5 kg sem gaf honum brons. Á meðfylgjandi mynd má sjá Halldór taka við silfurverðlaunum fyrir árangur í hnébeygjulyftu. Nánari upplýsingar og fréttir um mótið má sjá á heimasíðu Kraftlyftingasambands Íslands.