23. maí 2012

Stjörnuhlaup Garðabæjar

Miðvikudaginn 23. maí kl. 18.00 verður víðavangshlaupi Stjörnunnar hleypt af stokkunum við Vífilsstaðavatn. Stefnt er að því að gera þetta að árlegum viðburði þar sem allir sem hafa gaman af hreyfingu mæti og skemmti sér saman í góðu hlaupi í fallegu umhverfi.
  • Séð yfir Garðabæ

Miðvikudaginn 23. maí kl. 18.00 verður víðavangshlaupi Stjörnunnar hleypt af stokkunum við Vífilsstaðavatn. Stefnt er að því að gera þetta að árlegum viðburði þar sem allir sem hafa gaman af hreyfingu mæti og skemmti sér saman í góðu hlaupi í fallegu umhverfi. Nú er tækifæri til að koma og vera með frá byrjun. Hlaupið verður ræst af Gunnari Einarssyni bæjarstjóra og endar við Vífilstaðaspítalann. Mæting í rjóður sunnan við Hjallastefnuskólann.

Tvær vegalengdir

Boðið er upp á 10 km keppnishlaup og 4,5 km skemmtiskokk fyrir alla fjölskylduna. Þetta eru skemmtilegar hlaupaleiðir, annars vegar um Vífilstaðavatn (4,5 km) og hins vegar á göngustígum Heiðmerkur (10 km). Nú er um að gera að hvetja alla til að taka þátt og hafa gaman af þessu. Þátttökugjald er 1.000 kr fyrir 16 ára og eldri en 500 kr fyrir 15 ára og yngri (f.´96 og síðar).

Hlaupaleiðir - kort (pdf-skjal)

Skráning


Skráning fer fram á www.hlaup.com  eða á keppnisstað fyrir hlaup kl. 16-17:00.  Þátttakendum er bent á að mæta tímanlega eða í síðasta lagi 30 mínútum fyrir hlaup.
Drykkir að loknu hlaupi eru í boði ölgerðarinnar.