7. maí 2012

Vorhreinsun í algleymingi

Garðbæingar hafa heldur betið tekið til hendinni í vorhreinsun lóða sem stendur yfir þessa viku.
  • Séð yfir Garðabæ

Vorhreinsun lóða stendur yfir þessa viku eins og glöggt má sjá þegar farið er um bæinn þessa daga.

 

Garðbæingar kunna greinilega vel að meta þá þjónustu bæjarins að sækja til þeirra greinar og annað garðúrgang sem settur er út fyrir lóðamörk því hvarvetna um bæinn má sjá myndarlegur greinahrúgur og svarta plastpoka fulla af öðrum garðúrgangi sem bíða þess að vera sóttir.

 

Starfsmenn þjónustumiðstöðvar verða á ferðinni alla þessa viku. Í dag mánudag fóru þeir um Flatir og efri Lundir og hirtu garðúrgang og á morgun þriðjudag fara þeir um Lundir, Byggðir, Tún og Mýrar. 


Alla dagskrá vikunnar má sjá á upplýsingasíðunni um hreinsunarátak og vorhreinsun.

Fleiri myndir úr bænum eru á facebook síðunni.

http://www.facebook.com/Gardabaer.Iceland

Þetta unga fólk var önnum kafið við vorverkin á Flötunum í dag.

Dæmigerðar götumyndir úr Garðabæ þessa dagana.