Listadagar barna og ungmenna
Listadagar barna og ungmenna í Garðabæ verða nú haldnir í fimmta sinn í apríl, dagana 19-28. apríl. Dagskráin spannar um eina og hálfa viku og undirbúningur er í fullum gangi í skólum bæjarins. Garðbæingar eru hvattir til að líta við í skólum bæjarins þessa daga og fylgjast með því skapandi starfi sem þar fer fram. Ætlunin er að vekja athygli á því listræna starfi sem fer fram allt skólaárið með því að gera það sýnilegra þessa daga. Dagskrá listadaganna er aðgengileg hér á heimasíðu Garðabæjar.
,Hljómlist“
Þema listadaganna að þessu sinni er ,,HLJÓMLIST“ og mörg verkefni sem verða sýnd eða flutt á listadögunum taka mið af því. Þemað tengist m.a. verkefni sem hófst sl. haust þegar leik- og grunnskólakennurum í Garðabæ var boðið að taka þátt í námsstefnu um nýsköpun og skapandi námsumhverfi barna. Í framhaldi af því fengu elstu leikskólabörnin og yngstu grunnskólabörnin að taka þátt í listasmiðjum þar sem viðfangsefnið var að búa til hljóðfæri úr ýmsum efnum. Alls konar hljóðfæri voru búin til eins og hristur, blásturshljóðfæri o.fl. Afraksturinn verður sýndur á listadögunum þar sem börnin taka meðal annars þátt í skrúðgöngu miðvikudaginn 25. apríl og spila á hljóðfærin sín.
Sýningar á Garðatorgi
Á Garðatorgi verður sett upp samsýning leik- og grunnskólabarna og í göngugötunni á Garðatorgi verður hin árlega vorsýning myndlistarmanna úr Grósku sem opnar formlega á Sumardaginn fyrsta. Í lautinni á Garðatorgi verða settar upp ,,hljóðfígúrur“ sem leik- og grunnskólar hafa búið til og setja þannig skemmtilegan svip á bæinn. Í Bókasafni Garðabæjar verða ýmis listaverk eftir börn til sýnis og í Hönnunarsafni Íslands eru tvær áhugaverðar sýningar í gangi: Fingramál og Sjálfsagðir hlutir. Á sýnngunni Sjálfsagðir hlutir er starfrækt listasmiðja fyrir skólahópa á meðan á listadögunum stendur.
Þessi unga stelpa var mjög áhugasöm um listsýningu leik- og grunnskólabarna sem nú er til sýnis á Garðatorgi fyrir framan Bókasafnið.
Öflug listnámsbraut í FG
Í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ verður hægt að skoða verk eftir nemendur á listnámsbraut á opnu húsi föstudaginn 20. apríl þar sem búið verður að setja upp verk á öllum hæðum og í öllum álmum skólans auk þess sem leiklistarbrautin sýnir stuttmyndir o.fl. Nemendur í FG koma víða við og verða með ýmsar sýningar í Suðurhrauni, Ármúla, Víkinni sjóminjasafni og Grófarhúsinu.
Söngleikur og tónleikar
Félagsmiðstöðin Garðalundur og Garðaskóli hafa árlega sett upp söngleik og sýningar eru hafnar á söngleiknum ,,We Will Rock you“. Síðustu sýningarnar eru haldnar á listadögunum og áhugasamir geta séð nánari upplýsingar um miðaverð og sýningartíma á heimasíðu Garðalundar, www.gardalundur.is Í Tónlistarskóla Garðabæjar verða haldnir fjölmargir tónleikar nemenda í framhaldsáfanga og nánari upplýsingar um tímasetningu eru á heimasíðu skólans, tongar.is Blásarasveit tónlistarskólans leikur að venju í skrúðgöngu í hátíðardagskrá á Sumardaginn fyrsta.
Sameiginleg listadagahátíð
Miðvikudaginn 25. apríl verður haldin sameiginleg hátíð á Garðatorgi fyrir elstu börn leikskóla og nemendur í grunnskólunum. Nemendur fara í skrúðgöngu frá sínum skóla og mæta á Garðatorgið um kl. 10 þar sem Blásarasveit Tónlistarskólans tekur á móti þeim með fögrum tónum. Á hátíðinni verður sungið, dansað og spilað saman. Gói verður kynnir og hljómsveitin Blár Ópal tekur lagið.
Opið hús
Leikskólar í bænum verða með opið hús laugardaginn 28. apríl þar sem gestir og gangandi geta kynnt sér leikskólanna og starf þeirra. Í síðustu vikunni í apríl geta bæjarbúar einnig heimsótt skóla og skoðað þær sýningar sem þar eru á göngum og í stofum og allir eru velkomnir. Hér var stiklað á stóru í upptalningu á því sem verður í boði á listadögunum en allir geta kynnt sér dagskrána hér á heimasíðunni.