4. apr. 2012

Átta liða úrslit í Útsvari

Garðabær mætir Ísafjarðarbæ í þriðju umferð í spurningakeppninni Útsvari miðvikudagskvöldið 4. apríl kl. 19:55 í sjónvarpinu. Í liði Garðabæjar eru Vilhjálmur Bjarnason, Elías Karl Guðmundsson og Ragnheiður Traustadóttir.
  • Séð yfir Garðabæ

Útsvar er spurningakeppni sveitarfélaganna í Sjónvarpinu. Umsjónarmenn eru sem fyrr Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir. Dómari og spurningahöfundur er Ólafur Bjarni Guðnason.

Garðabær stóð sig vel í fyrstu og annarri umferð og hafði betur gegn Álftnesingum í sannkölluðum grannaslag 20. janúar sl. Í átta liða úrslitum sem fara fram miðvikudaginn 4. apríl mætir Garðabær liði Ísafjarðarbæjar.

 

Garðbæingar eru hvattir til að mæta í sjónvarpssal til að fylgjast með útsendingu og styðja við lið Garðbæinga. Áhorfendur sem vilja fylgjast með í sjónvarpssal geta mætt í sjónvarpshúsið í Efstaleiti hálftíma fyrir útsendingu.  Útsending hefst kl. 19:55.

 

Lið Garðabæjar:
Vilhjálmur Bjarnason
Elías Karl Guðmundsson
Ragnheiður Traustadóttir 

 

ÁFRAM GARÐABÆR!