8. mar. 2012

Innritun í grunnskóla hafin

Innrita þarf öll börn sem hefja nám í 1. og 8. bekk í haust. Innritun stendur yfir dagana 8.-25. mars.
  • Séð yfir Garðabæ

Innritun í grunnskólana í Garðabæ er hafin og stendur yfir til 25. mars.

Sérstök athygli er vakin á því að innrita þarf öll börn sem hefja nám í 8. bekk í haust. Þeir geta valið á milli Garðaskóla og Sjálandsskóla. 

Innritun fer fram á Mínum Garðabæ og á skrifstofum skólanna, virka daga kl. 9.15. Einnig þarf að innrita börn á tómstundaheimili skólanna sem fyrst.

Auglýsing um innritun í grunnskólana í Garðabæ.

Kynningar grunnskólanna vegna innritunar 2012.